Augu

Þegar augu þín,
snerta hár mitt og vanga,
segir þögnin allt.
Ég finn hugsun þína
strjúka eyra mitt
uns hún fyllir þögnina.
Hönd þín er mynd
hins ógerða.
Tungumál okkar er talað
í öllum löndum,
en fáir skilja það.