Heilsaðu Heim

Það var fyrir tíu árum,
að ég kvaddi þig með tárum,
Íslandið mitt, fjöll og dalir,
vorvindarnir léttir, svalir,
en myndina af þér tók ég með mér.

Á sléttlendinu nú ég hjóla,
bý í Höfn og kenni í skóla,
engar brekkur, engin veður,
lífið létt og landsins feður
fara vel með íslendinginn.

Betra þó en nokkur aðall,
væri stór og sterkur kaðall,
löndin þau að binda saman,
mikið lifandis skelfing væri gaman
þá að vera íslendingur.

Heilsaðu heim, já, heilsaðu öllum,
bændakonum og sveitakörlum,
heilsaðu einkum Þórsmörkinni
og fjölskyldunni í Vatnsmýrinni,
hverri þúfu og þrastarkríli.

Í Jónshúsi er glatt á hjalla,
hún Begga mín er búin að malla,
svið og rófur handa okkur,
hún er heimsins besti kokkur.
hér er feykigott að vera.