Heitt blóð

Það rennur heitt blóð í æðum þér og mér.
Við göngum fyrir hugsjón, þú og ég.
Þótt aldaraðir líði í vopnavaldsins blóðga straum,
við ennþá eygjum þennan gamla draum.
Hann er um frið og vopnalausa veröld.
Hann er sú þrá, að allt það fái að vaxa,
sem sannast er og best í brjóstum okkar.

En samt er att til stríðs af fullum krafti.
Já, málpípur þess hvína í gríð og ergi.
Þær skipta okkur í stóra og smáa hópa
og æfa sig í að murka úr öðrum lífið.

Það rennur heitt blóð í æðum þér og mér.
Við göngum fyrir hugsjón, þú og ég.
Við segjum: Vopnalausan frið
til handa öllum mönnum,
vígvélarnar undanbragðalaust við bönnum.
Við sjáum friðarsinna fleiri en áður var
og fylkjum okkur undir fána þar.