Kvöldin Löng
© 2008 Inga Birna Jónsdóttir
Hvað hugsar þú kvöldin löng,
Þá regnið lemur rúðuna
og ljósin titra úti.
Veistu hvaða mynd það er,
sem skildirðu eftir í hjarta mér?
Það getur varla verið,
því þá værir þú hér.
Hvað hugsar þú kvöldin löng,
þá bílar ösla um göturnar
og skýin þjóta hjá?
Ég feta astralleiðina
alla leið út í mýrina,
en villist svo af veginum
og vakna á sama stað.