Magnaður galdur

(skv. lýsingu Kristínar Helgu
Gunnarsdóttur, rithöfundar)

Í fallegum ósi
norður á Ströndum.
við veiðum í matinn,
fisklausar sullum í ánni.
Í árhólma merki
um stríð upp á líf og dauða,
fjaðrir og leifar,
risaeðlur, haförn,
eða bara álft
í paradís.
Skessan Kleppa
í landi Finnboga ramma
meig þessi býsn á túnin hans,
því er hér mýri.
Göróttir menn
brenndir í galdragjá,
höfðu tófur og konur
í haldi.
Í útvík var kaupmaður
miklilla drauma.
Andar minninga
í tómum sölum
hvísla sögur
um síldartunnur
og sætar Gunnur.
Steinn og þúfa
í fjöru þegja,
postulínsbrot
í bæjarrústum
frá fínum boðum
á Ströndum,
Dálítil sundlaug
í flæðarmáli,
bergmál
í þverhníptum
klettaveggjum,
tröllkarl með grænan
og úfinn brúsk,
í fyrndinni
varð hann að steini.
Dans í Trékyllisvík,
Gabríel leikur
svo hundrað manns
stíga dans,
svissarar fundu hér
himnaríki á jörðu niðri.
Matur í Kvennabragga
við Hótel Djúpuvík.
Gleðidrukknir gestir
í miðnætursól
rölta að bálkesti í fjöru.
Trúbador syngur sig
inn í ágústnótt.
Eyðifirðir og víkur.
Land með fortíð
og framtíð,
þar ósnortin auðæfi
liggja í kyrrð.
Reykjafjörður
er spegilsléttur.
Magnaður galdur
á Ströndum.