Meira Rím

Tindrar dögg,
drýpur hljótt,
við dagmál þverr.
Rennur fljót
í breiðri rás,
uns haf það er.

Lauf á trjágrein
þiggur líf
af sólaryl.
Skógur vex
í skoru fjalls
við skuggaspil.

Léttfætt hleypur
lítil stúlka
um morgunbil.
Þungstíg gengur
gömul kona
grafar til.

Hver lítil stund
til sólarlags
er lífsins dans.
Ok eins dags
er aðeins brot
úr ævi manns.