Nótt á nýju ári

Í nótt eiga allir
einhvers staðar heima.
Enginn á ferli,
yndisleg þögn
yfir staðnum.
Tilveran staldrar við
án þess að sofna.
Úr glugga hvers manns
skín ljós út í heiminn,
eins og hlýlegt viðmót
án gjalds.