Orð
© 2008 Inga Birna Jónsdóttir
Teiknari þarf ekki að tala.
Tónlist segir meira en orð.
Ef ég mætti skipta á orðum og gerðum,
horfði ég stanslaust í augun á þér.
Bú mitt er fullt af blómum, sem þegja.
Skemmtarinn lætur engum leiðast.
Samt leiðist mörgum.
Gullveig varð þreytt
á grammófónplötum samtímans
og fór að tala.
Þeir tóku hana af lífi
fyrir óspektir á almannafæri.
Hver mundi vilja lesa Hávumál?
Óður minn til þín
er óskilorðsbundinn.
Ást í meinum varir lengur.
Geislavirkni líðandi stundar
ber ásjónu þína til mín.
Fé lætur leiða sig til slátrunar,
en stundum segir ein sauðkindin
“me….”
Mig langar að standa með þér
á jöklinum
og vita hvort þú tekur
hönd mína í þína,
eða
ert þræll þíns tíma.