Sverrir Haraldsson Listmálari
© 2008 Inga Birna Jónsdóttir
Þessir fingur léku létt á nótum.
Þessir fingur drógu sterkar línur,
Gáfu litum seiðmagn,
fegurð, ljós og kraft.
Þessi gáfuaugu sáu alt og meira,
veittu vanabundnum listunnendum
innsýn inn í aðra veröld.
Nú ert þú farinn héðan, góði vinur
og lífið dapurt, litasnautt og grátt.
En list þín lifir,
Sverrir kæri Haralds.
Ég minnist þín með hlýju,
vináttu og þökk.