Tilveran

Tilveran -
dvalarstaður vitundar -
fugl,
sem situr á grein
og syngur sumarlangt,
getur ekki annað,
þekkir ekki annað guð
en manninn,
sem miðar byssunni
á brjóst hans.