Vatnið

Og þessi ást,
sem ekki fékk að fljóta,
eins og á á milli fjalla
beint til hafs.
Þessi helmingur af hugsun,
sem elti mig
og skildi ekki,
að ég vildi vera frjáls.

Þessi ást,
sem veltist um
og varð að harðri baun
í hjarta mínu,
því hún var svo hrædd við
vatnið.